

Fimmtudaginn 9. september, verður ferðaskrifstofan KILROY með kynningu við háskólatorg en fyrirtækið hefur hafið starfsemi sína á Íslandi. KILROY er alþjóðleg ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ævintýra- og bakpokaferðum fyrir ungt fólk og námsmenn og er fremst á sínu sviði á Norðurlöndum. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar í Kaupmannahöfn en starfsmenn þaðan munu leggja leið sína hingað til lands í þeim tilgangi að kynna þjónustu sína fyrir íslenskum háskólanemum.
Kynningin stendur yfir frá kl. 9:30-16.
Á kynningunni verður hægt að sjá myndbönd sem spiluð eru beint af heimasíðunni, kilroy.is. Kynnt verður annars vegar ferðir til framandi slóða í gegnum KILROY travels og hins vegar ráðgjöf sem í boði er fyrir íslenska námsmenn sem vilja fara í nám erlendis í gegnum KILROY education. Einnig verður hægt að skrá sig í heimsreisuhappdrætti KILROY á staðnum en útdrátturinn fer fram á opnunarhátíðinni sem fram fer um kvöldið á tónleikastaðnum Faktorý (gamla Grand Rokk).
Nemendur eru hvattir til að mæta á kynninguna og spyrja sérfræðinga í bakpoka- og ævintýraferðum spjörunum úr um allt sem viðkemur ferðamennsku á framandi slóðir eða nám erlendis. Fyrir frekari upplýsingar sjá fréttatilkynningu á heimasíðunni: kilroy.is
Ţessi frétt er ađeins opin félagsmönnum.
Ţessi frétt er ađeins opin félagsmönnum.
Ţessi frétt er ađeins opin félagsmönnum.
Kæru læknanemar
Nú líður nýnemavika Háskóla Íslands.
Stúdentadagar stúdentaráðs verða svo haldnir fimmtudaginn 2. september og föstudaginn 3. september. Þá etja deildir innan HÍ kappi í annars vegar knattspyrnu og hins vegar spurningakeppni.
Viljum við benda áhugasömum læknanemum á að skrá sig í þriggja manna lið og taka þátt í spurningakeppninni sem hefst á fimmtudag kl. 10-14. Þar getið þið ausið úr viskubrunnum ykkar yfir aðrar deildir og jafnvel komist í úrslit á föstudeginum.
Skráningar liða skulu berast á netfang shi@hi.is en þar skal tilgreina deild og nöfn liðsmanna. Fyrir lok þriðjudags!
Ekki teljum við þörf á því að skrá fleiri en eitt lið í knattspyrnu frá læknadeild, miðað við þátttöku fyrri ára. Mótið hefst á fimmtudag kl. 10-15 og 10-12 á föstudag.
Haldin verður létt knattspyrnuæfing á gervigras-sparkvelli hjá Framheimilinu kl. 19.00 á morgun þriðjudag og allir sem vilja eru hvattir til að mæta.
Kveðja, Pétur Sólmar
Ritari FL
Ţessi frétt er ađeins opin félagsmönnum.
Ţessi frétt er ađeins opin félagsmönnum.
Alþjóðlegt Svima Þing [XXVI Bárány Society Meeting] verður haldið í Reykjavik dagana 19. - 21. ágúst n.k. en þingstaðurinn er Háskólatorg og er búist við um 400 þátttakendum, sjá nánar: www.congress.is/barany2010.
Leitað er eftir áhugasömum læknanemum til að liðsinna við þinghaldið, en þannig gefst þeim kjörið tækifæri til að upplifa alþjóðaþing og læra allskonar um svima.
Áhugasamir hafi samband við Hannes Petersen á netfangið: hpet@hi.is.
Með kveðju
Hannes Petersen
Ţessi frétt er ađeins opin félagsmönnum.
Ţessi frétt er ađeins opin félagsmönnum.
| Eldri fréttir » |
| su | má | þr | mi | fi | fö | la |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | ||||
| 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
| 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
| 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
| 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
| « | 23:24:33 | » | ||||
Afmćlisbarn dagsins:
+ Unnur Ragna